Handbolti

Guif jafnaði metin

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/HSÍ
Kristján Andrésson og lærisveinar hans í Guif eru í fínni stöðu í undanúrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í handbolta.

Guif vann í kvöld sigur á Alingsås, 26-23, í öðrum leik liðanna í undanúrslitum úrslitakeppninnar og jafnaði þar með metin í 1-1. Þrjá sigra þarf til að komast áfram í úrslitaleikinn.

Aron Rafn Eðvarðsson stóð í marki Guif og Heimir Óli Heimisson skoraði eitt mark fyrir liðið. Næsti leikur fer fram á fimmtudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×