Handbolti

Igropulo tryggði Füchse Berlin sigur

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Dagur Sigurðsson
Dagur Sigurðsson vísir/getty
Refirnir hans Dags Sigurðssonar, Füchse Berlin, marði Wetzlar 25-24, í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Konstantin Igropulo tryggði sigurinn átta sekúndum fyrir leikslok.

Leikurinn var æsispennandi eins og tölurnar gefa til kynna en einnig munaði aðeins einu marki í hálfleik, 15-14 fyrir Refina frá Berlin.

Igropulo skoraði 7 mörk fyrir Berlin og Sven-Sören Christophersen 6. Steffen Fäth og Christian Rompf skoruðu 5 mörk hvor fyrir Wetzlar.

Füchse Berlin er í 5. sæti með 46 stig þegar tvær umferðir eru eftir og siglir lygnan sjó í deildinni. Wetzlar er í 11. sæti með 27 stig og er ekki í fallhættu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×