Handbolti

Úrslitin í Meistaradeildinni í beinni á Stöð 2 Sport

Aron og Guðjón Valur fagna þýska meistaratitlinum í gær.
Aron og Guðjón Valur fagna þýska meistaratitlinum í gær. vísir/getty
Handboltavertíðinni lýkur með stæl um næstu helgi en þá fara fram úrslitin í Meistaradeildinni. Allir leikirnir verða í beinni á Stöð 2 Sport.

Úrslitahelgin fer venju samkvæmt fram í Lanxess Arena í Köln. Undanúrslitin fara fram á laugardag og úrslitin eru svo á sunnudag.

Í fyrri undanúrslitaleiknum mætast Barcelona og Flensburg sem Ólafur Gústafsson leikur með. Hinn undanúrslitaleikurinn er á milli Íslendingaliðsins Kiel og ungverska liðsins Veszprém.

Guðjón Valur Sigurðsson er að leika sína síðustu leiki fyrir Kiel og svo gæti farið að síðasti leikurinn hans verði gegn Barcelona en Guðjón er sagður vera á förum til Barcelona í sumar.

Ávallt er slegist um miðana á þessa úrslitahelgi og svíkur hún afar sjaldan. Er því óhætt að lofa taumlausri handboltaskemmtun um næstu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×