Golf

Thomas Björn í góðum málum fyrir lokahringinn á Wentworth

Thomas Björn hefur verið frábær á Wentworth hingað til.
Thomas Björn hefur verið frábær á Wentworth hingað til. Getty
Það leit ekki beint út fyrir að Thomas Björn myndi stinga af á BMW PGA meistaramótinu þegar að Daninn hóf sinn þriðja hring í dag en hann byrjaði á því að fá tvöfaldan skolla á fyrstu holu og var nokkuð heppinn að sleppa í gegn um fyrri níu holurnar á aðeins tveimur höggum yfir pari. Björn fór svo gjörsamlega á kostum á seinni níu, fékk sjö fugla, tvö pör og kláraði hringinn á 65 höggum eða fimm undir pari.

Hann leiðir því mótið fyrir lokahringinn en þessi vinsæli kylfingur er á 15 höggum undir pari, fimm höggum á undan Luke Donald sem er í öðru sæti á tíu höggum undir.

Írinn Shane Lowry er einn í þriðja sæti á níu höggum undir pari en Joost Luiten og Rory McIlroy deila fjórða sætinu á átta höggum undir og þurfa hálfgert kraftaverk á morgun til þess að ná gera atlögu að Björn sem hefur verið í sérflokki hingað til.

BMW PGA meistaramótið er eitt stærsta mót ársins á Evrópumótaröðinni og fer það ávalt fram á hinum glæsilega Wentworth velli á Englandi. Lokahringurinn fer fram á morgun og verður hann í beinni útsendingu á Golfstöðinni frá klukkan 12:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×