Handbolti

Birna Berg skoraði 2 og varð meistari

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
mynd/heimasíða Sävehof
Sävehof tryggði sér sænska meistaratitil kvenna eftir stórsigur á Skuru 38-20 í úrslitaleik liðanna um titilinn.

Birna Berg Haraldsdóttir skoraði 2 mörk fyrir deildarmeistarana sem áttu aldrei í vandræðum í leiknum í dag.

Sävehof var 18-12 yfir í hálfleik og fór ósigrað í gegnum úrslitakeppnina en liðið fór örugglega í úrslit með 3-0 sigri á Höörs á meðan Skuru þurfti oddaleik gegn Lugi.

Yfirburðir Sävehof í dag voru slíkir að allir leikmenn liðsins skoruðu í leiknum.

Úrslitakeppninni í Svíþjóð lýkur með stökum úrslitaleik en ekki úrslitarimmu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×