Handbolti

Tveir Slóvenar í bann eftir slagsmál í leik

Zorman er hér í leik með liði sínu, Kielce, gegn Barcelona.
Zorman er hér í leik með liði sínu, Kielce, gegn Barcelona. vísir/getty
Möguleikar Slóvena á því að komast á HM í Katar á næsta ári minnkuðu mikið þegar tveir lykilleikmenn liðsins voru dæmdir í leikbann í gær.

Þetta eru þeir Uros Zorman og Miha Zvizej sem voru dæmdir í bann fyrir slagsmál í leik gegn Úkraínu í janúar.

Það varð allt vitlaust í leiknum er leikmenn liðanna slógust. Þurfti að stöðva leikinn heillengi vegna slagsmálanna. Leikmenn frá Úkraínu voru einnig dæmdir í bann.

Zorman er heilinn í slóvenska liðinu og Zvizej lykilmaður í vörninni. Slóvenar mæta sterku liði Ungverja í umspilinu um laust sæti á HM og án þessara manna verður róðurinn afar þungur fyrir Slóvena.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×