Handbolti

Bergischer verður áfram í úrvalsdeild

Arnór Þór var flottur í kvöld.
Arnór Þór var flottur í kvöld. vísir/vilhelm
Íslendingaliðið Bergischer tryggði í kvöld sæti sitt í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Liðið vann þá frábæran útisigur á liði Dags Sigurðssonar, Füchse Berlin.

Lokatölur 25-26 í leik þar sem Bergischer leiddi allan leikinn. Leikmenn Berlin sóttu þó að þeim í síðari hálfleik en Bergischer hélt út.

Björgvin Páll Gústavsson átti flottan leik í marki Bergischer og Arnór Þór Gunnarsson skoraði sjö mörk fyrir liðið í leiknum.

Leikmenn Bergischer geta því notið leiksins í lokaumferðinni á laugardag þar sem sætið er tryggt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×