Handbolti

Umfjöllun: Ísland - Portúgal 33-28 | Sigur á Ísafirði

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Vísir/Stefán
Ísland lagði Portúgal 33-28 í vináttulandsleik í handbolta á Ísafirði í dag. Ísland var sterkari aðilinn í leiknum en þurfti að hafa fyrir sigrinum.

Portúgal er nokkuð frá því að vera í sama gæðaflokki og Ísland í handbolta. Engu að síður þarf að halda einbeitingu gegn liðinu því það refsar fyrir hver mistök með ösku fljótum leikmönnum sem keyra fram.

Portúgal skoraði ellefu mörk úr hraðaupphlaupum í leiknum en flest þeirra komu eftir kæruleysislegar sóknir Íslands.

Íslensku leikmennirnir virtust ekki búast við erfiðum leik í upphafi en náðu að bæta vörn og sókn er leið á fyrri hálfleik og voru fjórum mörkum yfir hálfleik 15-11.

Ísland skoraði fyrsta mark seinni hálfleiks en þá minnti Portúgal aftur á sig og skoraði fjögur mörk á þremur mínútum og jafnaði metin.

Tapaðir boltar og ótímabær skot varð Íslandi að falli á þeim kafla en undir öruggri leikstjórn Snorra Steins Guðjónssonar bætti Ísland úr því og náði forystu á ný sem liðið lét aldrei af hendi.

Bjarki Már Elísson nýtti tækifærið mjög vel í dag. Hann byrjaði á bekknum en kom inn um miðbik fyrri hálfleiks og skoraði mest allra í leiknum, 8 mörk. Róbert Gunnarsson fékk mikið pláss á línunni, sérstaklega er leið á leikinn og skoraði 7 mörk.

Vörn íslenska liðsins hefur oft verið betri og létu leikmenn óhefðbundinn sóknarleik Portúgals oft fara illa með sig. Vörnin stóð þó ágætlega á köflum en íslenska liðið bætti alltaf í þegar Portúgal nálgaðist og því má með sanni segja að Ísland hafi verið með örugg tök á leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×