Körfubolti

Jón Arnór og félagar áttu ekkert í meistarana

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Jón Arnór í leik með íslenska landsliðinu
Jón Arnór í leik með íslenska landsliðinu vísir/daníel
Real Madrid er komið í undanúrslit spænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta eftir 101-95 sigur á CAI Zaragoza í dag. Real Madrid vann einvígi liðanna 2-0.

Real Madrid vann fyrri leikinn í Madrid föstudaginn og var aftur sterkari aðilinn í Zaragoza í dag og landaði öruggum sigri þó Zaragoza hafi minnkað muninn í fjögur stig þegar tvær mínútur voru eftir af leiknum.

Jón Arnór Stefánsson hitti úr eina skoti sínu í leiknum sem var utan þriggja stiga línunnar. Hann skoraði þrjú stig, tók fjögur fráköst og gaf tvær stoðsendingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×