Finnar mæta með einn 38 ára gamlan á HM í körfu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. ágúst 2014 18:15 Hanno Möttölä fagnar einum sigranna á EM í fyrra með liðsfélögum sínum í finnska landsliðinu. Vísir/AFP
Finnar eru einu fulltrúar Norðurlandanna á HM í körfubolta sem hefst á Spáni á morgun. Finnar fá verðugt verkefni og mæta Bandaríkjamönnum í fyrsta leik. Finnska liðið sló í gegn á EM í Slóveníu í fyrra þar sem liðið náði 9. til 10. sæti. Finnar ætlar að fjölmenna til Bilbao og það er mikið körfuboltaæði í Finnlandi þessi misserin. Hinn gamalreyndi Hanno Möttölä verður með Finnum á HM en hann heldur upp á 38 ára afmælið sitt á mótinu. Möttölä meiddist illa á hné á EM fyrir ári síðan en er kominn aftur til baka. Möttölä er líklega besti körfuboltamaður Finna fyrr og síðan og spilaði um tíma með Atlanta Hawks í NBA-deildinni. Finnar eru annars með reynt lið á heimsmeistaramótinu en þar eru einnig hinn 33 ára gamli framherji Kimmo Muurinen, hinn 33 ára gamli leikstjórnandi Teemu Rannikko og hinn þrítugi kraftframherji Gerald Lee. Einn af nýjum mönnunum er hinn 208 sentímetra hái Erik Murphy sem spilaði með Chicago Bulls í NBA-deildinni á síðasta tímabili en er nú í herbúðum Cleveland Cavaliers. Murphy, sem á finnska móður, lék sína fyrstu landsleiki í ágúst en hann er 23 ára gamall og sonur bandaríska körfuboltamannsins Jay Murphy sem lék á sínum tíma í NBA. Finnar eru í riðli með Bandaríkjunum, Úkraínu, Dóminíska Lýðveldinu, Tyrklandi og Nýja-Sjálandi en fjórar efstu þjóðirnar tryggja sér sæti í sextán liða úrslitunum.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira