Handbolti

Barcelona fór taplaust í gegnum riðlakeppnina

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Guðjón Valur.
Guðjón Valur. Mynd/Barcelona
Guðjón Valur Sigurðsson og félagar í Barcelona unnu öruggan 37-23 sigur á Esperance Tunis frá Túnis í heimsmeistarakeppni félagsliða í handknattleik rétt í þessu.

Barcelona hefur farið nokkuð auðveldlega í gegnum riðlakeppnina en liðið vann alla þrjá leiki sína.

Eftir góða byrjun með Barcelona var Guðjón rólegur í leiknum í dag en hann skoraði tvö mörk í leiknum, bæði úr hraðaupphlaupum.

Óvíst er hverjum Barcelona mætir í undanúrslitum en seinna í dag fer fram lokaumferð hins riðilsins, Flensburg - Al-Jaish og mætir Barcelona liðinu sem tapar þeim leik en Barcelona hefur titil að verja á mótinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×