Handbolti

Ellefu mörk í sigri Emsdetten

Anton Ingi Leifsson skrifar
Hannes Jón Jónsson.
Hannes Jón Jónsson. Vísir/Getty
Fimm Íslendingar voru í eldlínunni í þýsku fyrstu deildinni í handknattleik, en gengið var þó misjafnt.

Lærisveinar Rúnars Sigtrygssonar í EHV Aue töpuðu 28-29 gegn Leipzig á heimavelli. Sveinbjörn Pétursson varði þrjú skot samkvæmt heimasíðu deildarinnar.

Emsdetten rúllaði yfir Hüttenberg á heimavelli, en lokatölur urðu 37-26. Anton Rúnarsson skoraði sex mörk og Oddur Grétarsson fimm.

Eisenach og TUSEM Essen skildu jöfn 22-22 í Eisenach. Hannes Jón Jónsson skoraði tvö mörk, en Bjarki Már Elísson komst ekki á blað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×