Handbolti

Franska línutröllið hjá Barcelona til 2017

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sorhaindo er tröll að burðum.
Sorhaindo er tröll að burðum. Vísir/Getty
Franski línumaðurinn Cedric Sorhaindo hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Barcelona. Hann verður því áfram hjá katalónska stórveldinu í það minnsta til ársins 2017.

Sorhaindo kom til Barcelona frá Toulouse árið 2010 og hefur síðan þá unnið 17 titla með liðinu.

Sorhaindo, sem er fæddur á eyjunni Martinique, er sömuleiðis lykilmaður í franska landsliðinu. Hann hefur tvisvar orðið Evrópumeistari með Frakklandi, tvisvar heimsmeistari og einu sinni Ólympíumeistari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×