Alfreð: Við erum að spila mjög illa 4. september 2014 16:00 Alfreð Gíslason. vísir/getty
Þýskalandsmeistarar Kiel hafa byrjað tímabilið mjög illa og þjálfarinn, Alfreð Gíslason, er eðlilega ekki ánægður með leik liðsins. Kiel byrjaði á því að tapa gegn Lemgo í fyrstu umferð en vann síðan sannfærandi sigur á Evrópumeisturum Flensburg. Svo marði Kiel sigur á lemstruðu liði Hamburg og í gær tapaði liðið á neyðarlegan hátt, 22-21, gegn smáliði Balingen. "Við erum að spila mjög illa," sagði Alfreð svekktur í leikslok. Sóknarleikurinn er að svíkja liðið en það hefur aðeins skorað 97 mörk í fyrstu fjórum leikjum sínum en í fyrra skoraði liðið 137 mörk í fyrstu fjórum leikjunum. Aðeins gegn Flensburg braut Kiel 30 marka múrinn. "Sóknarleikurinn hefur verið mjög lélegur í öllum þessum leikjum. Við erum með nýja menn í sókninni og þeir þurfa tíma til þess að aðlagast." Nýju mennirnir Domagoj Duvnjak og Joan Canellas hafa ekkert getað í upphafi leiktíðar og örvhenta skyttan Steffen Weinhold meiddist gegn Hamburg. Engu að síður er nóg af frábærum leikmönnum í þessu liði Kiel og hreinlega með ólíkindum hversu slakur leikur liðsins hefur verið í upphafi leiktíðar.
Handbolti Tengdar fréttir Kiel tapaði óvænt gegn Balingen | Aron sá rautt Þýsku meistararnir í Kiel töpuðu nokkuð óvænt fyrir Balingen á útivelli í kvöld 21-22. Aron Pálmarsson fékk rautt spjald í leiknum þegar tuttugur mínútur voru til leiksloka. 3. september 2014 20:35 Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Sögulegur dagur er Thelma sópaði til sín gullverðlaunum Sport Fleiri fréttir Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Bjarki Már og Orri Freyr með stórsigra í Meistaradeildinni Uppgjörið: FH - ÍBV 33-30 | Góður kafli í fyrri hálfleik skilaði sigri FH-inga Framarar flæktir í óskýrum reglum HSÍ: „Þetta er alveg galið dæmi“ Haukur komið að nítján mörkum í fyrstu tveimur leikjunum í Meistaradeildinni Selfoss átti lítið í Íslandsmeistara Vals „Stefnum á að vera í þessum efri hluta“ Uppgjörið: ÍR - ÍBV 22-22 | Heimakonur komnar á blað Haukur magnaður í sigri á Viktor Gísla og félögum Alfa Brá og Katrín Anna í landsliðið Tímabilið byrjar vel hjá Bjarka sem varð markahæstur í stórsigri Gummersbach gaf mikið eftir í seinni hálfleik Sjá meira
Kiel tapaði óvænt gegn Balingen | Aron sá rautt Þýsku meistararnir í Kiel töpuðu nokkuð óvænt fyrir Balingen á útivelli í kvöld 21-22. Aron Pálmarsson fékk rautt spjald í leiknum þegar tuttugur mínútur voru til leiksloka. 3. september 2014 20:35