Handbolti

Guðmundur ræður Svensson sem markmannsþjálfara

Guðmundur og Svensson með Rhein-Neckar Löwen.
Guðmundur og Svensson með Rhein-Neckar Löwen. vísir/getty
Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari Danmerkur, er farinn að raða þjálfurum í kringum sig og hann er nú búinn að ráða gamla sænska landsliðsmarkvörðinn, Tomas Svensson, í vinnu.

Það þarf ekkert að koma sérstaklega á óvart enda var Svensson aðstoðarmaður Guðmundar hjá Rhein-Neckar Löwen.

Þar sá hann einmitt um markmannsþjálfun landsliðsmarkvarðarsins Niklas Landin. Það samstarf gekk vel þannig að Svensson mun þjálfa hann með landsliðinu.

Landin er sagður hæstánægður með að fá að njóta liðsinnis Svensson áfram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×