Körfubolti

Helena stigahæst í fyrsta leik

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Helena Sverrisdóttir í landsleik.
Helena Sverrisdóttir í landsleik. vísir/daníel
Helena Sverrisdóttir fer vel af stað með sínu nýja liði CCC Polkowice í Póllandi, en hún var stigahæst í fjörtíu stiga sigri á æfingamóti í Ostrava í Tékklandi í dag.

Polkowice lagði SBS Ostrava, 90-50, og var Helena stigahæst með 20 stig, níu stigum meira en næsta kona í liðinu.

Helena og stöllur hennar höfðu sex stiga forystu eftir fyrsta leikhluta og bættu svo jafnt og þétt við forskotið.

Helena gekk í raðir Polkowice í dögunum, en hún spilaði í fyrra með Miskolc í Ungverjalandi og þar áður með Góðu Englunum í Slóvakíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×