Körfubolti

Utan vallar: Vonandi ekki 1+11 deildin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Úr leik KR og Grindavíkur í Meistarakeppni KKÍ á sunnudaginn.
Úr leik KR og Grindavíkur í Meistarakeppni KKÍ á sunnudaginn. Vísir/Ernir
Dominos-deild karla í körfubolta hefst í kvöld með fjórum leikjum en margir bíða spenntir eftir því hvaða áhrif miklar mannabreytingar hafa á gang mála í karlakörfunni í vetur.

KR er ríkjandi Íslandsmeistari eftir frábæran fyrsta vetur undir stjórn Finns Freys Stefánssonar. Liðið vann 30 af 33 leikjum sínum í deild og úrslitakeppni og slæmu fréttirnar fyrir hin liðin í deildinni er að KR-liðið gæti jafnvel verið í enn meiri sérflokki í ár.



Martin Hermannsson
, leikmaður ársins í fyrra, er reyndar farinn út í skóla en í staðinn horfa menn á að Brynjar Þór Björnsson skipti aftur úr öðrum gírnum og sýni hvað hann getur. Stærstu fréttirnar úr Vesturbænum eru þó þær að liðið er búið að fá til sín bandaríska miðherjann Michael Craion sem var kosinn besti erlendi leikmaðurinn á síðustu leiktíð. Miðherjastaðan var eina veika staða liðsins í fyrra en ekki lengur.

KR var spáð yfirburðarsigri í spánni og Vesturbæjarliðið hefur allt til alls til að gera þetta hreinlega að 1+11 deildinni. Grindavík hefur misst lykilmann sem og Keflavík og Njarðvík en þau voru öll inn á topp fjögur í fyrra. Stjarnan tekur nú fyrstu skrefin eftir að Teitur Örlygsson hætti með liðið. Það eru því líka breytingar í Garðabænum.

Haukar eru hins vegar lið sem líkt og KR hefur haldið flest öllum sínum lykilmönnum. Nýliðarnir komu skemmtilega inn í deildina í fyrra og nú eru ungu strákarnir ári eldri og reynslunni ríkari sem ætti að nýtast Hafnarfjarðarliðinu vel.

Nýliðar Tindastóls tefla fram Darrel (Keith Lewis) og Darell (Flake) í viðbót við bandarískan leikmann en ætla að láta hinn stórefnilega Pétur Rúnar Birgisson bera ábyrgð á leikstjórnendastöðunni sem er nú jafnan á herðum erlendra atvinnumanna. Þetta er áhugaverð tilraun og margir hafa trú á henni því Stólunum er spáð 5. sæti.

Nokkrar af ungu stjörnum Dominos-deildarinnar í fyrra hafa nú yfirgefið deildina en hvort ungir leikmenn haldi áfram að fá stór tækifæri í deildinni verður að koma í ljós. Sum félög, eins og Keflavík, hafa farið þá leið að kalla á eldri goðsagnir og það er vissulega spennandi að sjá Damon Johnson aftur á íslenskum fjölum þótt hann haldi upp á fertugsafmælið á tímabilinu.

KR-ingar hafa vissulega allt til alls til að verja Íslandsmeistaratitilinn í vetur og það kæmi svo sem ekki mikið á óvart ef Vesturbæjarliðið yrði í sérflokki. Leikirnir vinnast sem betur fer á parkettinu og fyrsta skyndipróf KR-inga er í kvöld þegar Njarðvíkingar mæta í DHL-höllina með goðsagnirnar Friðrik Inga Rúnarsson og Teit Örlygsson við stjórnvölinn.


Tengdar fréttir

Brynjar: Erum klárir í slaginn

KR og Keflavík var spáð sigri í árlegri spá fyrirliða, þjálfara og formanna liðanna í Domino's deildum karla og kvenna í körfubolta.

KR og Keflavík verða Íslandsmeistarar næsta vor

KR og Keflavík var spáð Íslandsmeistaratitlinum í körfubolta körfuboltanum á árlegum kynningarfundi fyrir Dominos-deildirnar sem haldin var í Laugardalshöllinni í hádeginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×