Körfubolti

Annar sigur Mitteldeutscher í röð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hörður er kominn í þýsku deildina á ný.
Hörður er kominn í þýsku deildina á ný. Vísir/Daníel
Landsliðsmaðurinn Hörður Axel Vilhjálmsson skoraði sex stig þegar Mitteldeutscher BC vann Walter Tigers Tübingen, 90-79, í þýsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Mitteldeutscher var undir, 14-19, eftir fyrsta leikhluta, en Hörður og félagar tóku völdin í öðrum sem þeir unnu með 15 stigum. Mitteldeutscher hélt forystunni í seinni hálfleik og vann að lokum 11 stiga sigur, 90-79.

Þetta var annar sigur liðsins í röð, eftir tap fyrir Bayern München í fyrsta leik tímabilsins.

Fjögur af sex stigum Harðar komu af vítalínunni. Hann tók einnig þrjú fráköst og gaf þrjár stoðsendingar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×