Handbolti

Róbert skoraði tvö mörk í sigri PSG

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Róbert Gunnarsson.
Róbert Gunnarsson. vísir/getty
Róbert Gunnarsson og félagar hans í franska handboltaliðinu Paris Saint-Germain unnu fimm marka sigur, 27-22, á Prvo Plinarsko Zagreb frá Króatíu í annarri umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar í dag.

Róbert skoraði tvö mörk fyrir PSG í leiknum sem er búið að vinna báða leiki sína til þessa í riðlinum. Króatíska liðið er ekkert slor en það lagði Kiel í fyrstu umferð riðlakeppninnar.

Danska liðið Álaborg, sem Ólafur Gústafsson leikur með, gerði jafntefli við Kadetten Schaffhausen frá Sviss, 23-23, og er með þrjú stig eftir fyrstu tvær umferðirnar.

Ólafur komst ekki á blað í leiknum en fékk gult spjald í vörninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×