Handbolti

Alexander markahæstur í tapi

Anton Ingi Leifsson skrifar
Lexi var markahæstur.
Lexi var markahæstur. Vísir/Getty
Rhein-Neckar Löven tapaði fyrir Vardar Skopje frá Makedóníu í Makedóníu í dag. Sjö íslensk mörg litu dagsins ljós.

Staðan var jöfn í hálfleik 13-13, en í síðari hálfleik voru heimamenn í Vardar sterkari og unnu að lokum þriggja marka sigur, 28-25.

Matjaz Brumen var markahæstur hjá Vardar með sex mörk, en íslenski landslismaðurinn Alexander Petersson skoraði sjö mörk fyrir gestina. Stefán Rafn Sigurmannsson komst ekki á blað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×