Handbolti

Ólafur skoraði tvö mörk

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ólafur í landsleik.
Ólafur í landsleik. Vísir/Vilhelm
Ólafur Guðmundsson skoraði tvö mörk í öruggum sigri Hannover Burgdorf á Balingen Weilstetten í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Heimamenn í Hannover leiddu með átta mörkum í hálfleik, 16-8 og héldu uppteknum hætti í síðari hálfleik og unnu að lokum öruggan sigur 29-23.

Hannover er eftir leikinn í sjöunda sæti deildarinnar, en Balingen eru í fjórða sæti þannig þsesi úrslit komu nokkuð á óvart.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×