Körfubolti

Helena stigahæst í stórsigri

Anton Ingi Leifsson skrifar
Helena spilaði vel í dag.
Helena spilaði vel í dag. Vísir/Daníel
Helena Sverrisdóttir var stigahæst hjá Polkowice gegn Glucose Row Rybnik í pólsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag.

Helena skoraði 22 stig, tók fjögur fráköst og gaf fjórar stoðsendingar, en sigur Polkowice var afar öruggur.

Lokatölurnar urðu 76-47, eftir að staðan hafi verið 33-16 í hálfleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×