Handbolti

Tvö íslensk mörk í sigri Aue

Anton Ingi Leifsson skrifar
Árni Þór í leik með Akureyri á sínum tíma.
Árni Þór í leik með Akureyri á sínum tíma. Vísir/Arnþór
EHV Aue vann góðan sigur á TVS Bayer Dormagen í B-deildinni í þýska handboltanum í dag. Tvö íslensk mörk litu dagsins ljós.

Lokatölur urðu 24-20, Árni Þór Sigtryggsson skoraði tvö mörk fyrir Aue.

Sveinbjörn Pétursson stóð í marki EHV Aue, en Bjarki Már Elísson komst ekki á blað fyrir liðið.

Rúnar Sigtryggsson þjálfar lið Aue sem situr í níunda sæti deildarinnar eftir leiki dagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×