Handbolti

Tandri með tíu mörk á móti einu af efstu liðunum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tandri Konráðsson
Tandri Konráðsson Vísir/Vilhelm
Tandri Konráðsson átti frábæran leik þegar lið hans Ricoh HK gerði 25-25 jafntefli á móti Lugi HF í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Tandri skoraði tíu mörk í leiknum (úr 18 skotum) og var langmarkahæstur í sínu liði. Lugi var í 2.s sæti og þar með tíu sætum ofar í töflunni fyrir leikinn.

Leikmenn Lugi tryggðu sér jafntefli með því að skora úr vítaspyrnu níu sekúndum fyrir leikslok en Tandri skaut framhjá í sókninni á undan þegar hann gat nánast tryggt sínum liði sigurinn.

Tandri kom Ricoh-liðinu tvisvar í þriggja marka forskot á lokasprettinum (24-21 og 25-22) en Lugi sýndi styrk í lokinn og tryggði sér jafntefli með því að skora þrjú síðustu mörkin.

Tandri byrjaði leikinn af krafti og skoraði fjögur af sjö fyrstu sjö mörkum Ricoh HK í leiknum en Lugi var með frumkvæðið allan fyrri hálfleikinn og 14-12 yfir í hálfleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×