Körfubolti

Landsliðsþjálfarinn hafði betur gegn Axel

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Craig Pedersen.
Craig Pedersen. Vísir/Anton
Tvö lið með sterka tengingu til Íslands áttust við í dönsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Svendborg Rabbits hafði þá betur gegn Værlöse BBK, 78-73, en landsliðsmaðurinn Axel Kárason leikur með síðarnefnda liðinu og skoraði sjö stig í kvöld.

Craig Pedersen, Kanadamaðurinn sem þjálfar nú íslenska landsliðið, er aðalþjálfari Svendborg en Arnar Guðjónsson er þjálfari hjá liðinu.

Svendborg er í hópi efstu liða deildarinnar með átta stig en Værlöse er með tvö.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×