Körfubolti

Jón Arnór og félagar á toppnum með Barcelona og Real Madrid

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. Vísir/Daníel
Jón Arnór Stefánsson og félagar hans í Unicaja Malaga eru á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar eftir fjórar umferðir en liðið hefur unnið alla fjóra leiki sína í deildinni til þessa.

Barcelona, Unicaja og Real Madrid eru öll með fjóra sigra í fjórum leikjum en auk þess að vinna alla fjóra deildarleiki sína hefur Unicaja unnið báða leiki sína í Euroleague.

Jón Arnór var með 6 stig á tæpum 18 mínútum í sjö stiga sigri á Herbalife Gran Canaria á Kanaríeyjum í gær. Jón var einnig með 2 stolna bolta og 1 frákast.

Þetta leit þó ekki alltof vel út hjá Unicaja eftir fyrsta leikhlutann þar sem liðið var átta stigum undir, 14-22. Unicaja vann hinsvegar þrjá síðustu leikhlutana og tryggði sér sigurinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×