Handbolti

Fimm íslensk mörk í tapi Nøtterøy | Einar og félagar á toppnum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Einar Rafn reynir skot að marki í leik með FH á síðustu leiktíð.
Einar Rafn reynir skot að marki í leik með FH á síðustu leiktíð. vísir/daníel
Einar Rafn Eiðsson skoraði fjögur mörk og Gísli Jón Þórisson eitt þegar Nøtterøy tapaði fyrir Runar Sandefjord í norska handboltanum í kvöld. Staðan var 12-15 í leikhléi, Nøtterøy í vil.

Einar Ingi Hrafnsson komst ekki á blað þegar Arendal vann tveggja marka sigur, 31-29, á Bækkelaget Håndball Elite.

Arendal situr á toppi norsku deildarinnar þegar átta umferðum er lokið. Einar og félagar eru með 14 stig, jafn mörg og Elverum.

Nøtterøy er hins vegar í 11. og næstneðsta sæti deildarinnar með aðeins fjögur stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×