Handbolti

Oddur skoraði 11 mörk fyrir Emsdetten | Öll Íslendingaliðin töpuðu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Akureyringurinn knái skoraði 11 mörk fyrir Emsdetten í kvöld.
Akureyringurinn knái skoraði 11 mörk fyrir Emsdetten í kvöld. Vísir/Vilhelm
Oddur Gretarsson fór mikinn þegar Emsdetten laut í gras fyrir Saarlouis í þýsku B-deildinni í handbolta í kvöld. Lokatölur 31-34.

Oddur skoraði 11 mörk, en landar hans Anton Rúnarsson og Ernir Hrafn Arnarson skoruðu eitt mark hvor. Ólafur Bjarki Ragnarsson er enn frá vegna meiðsla.

Bjarki Már Elísson og Hannes Jón Jónsson skoruðu báðir fjögur mörk þegar Eisenach tapaði með eins marks mun, 29-28, fyrir toppliði Leipzig á útivelli. Eisenach er í 10. sæti með 11 stig, einu meira en Emsdetten sem er í því 12.

Þá tapaði Grosswallstadt fyrir Hüttenberg 23-22. Fannar Þór Friðgeirsson skoraði fjögur mörk fyrir Grosswallstadt sem situr í 3. sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×