Handbolti

Guðjón Valur með sex mörk í stórsigri Barcelona

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guðjón Valur raðar inn mörkum fyrir Barcelona.
Guðjón Valur raðar inn mörkum fyrir Barcelona. Mynd/Barcelona
Barcelona vann enn einn sigurinn í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Naturhouse La Rioja varð fyrir barðinu á Spánarmeisturunum sem unnu öruggan 11 marka sigur, 23-34. Níu marka munur var á liðunum í hálfleik, 10-19.

Landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson skoraði sex mörk fyrir Börsunga úr átta skotum, en hann var næstmarkahæstur þeirra ásamt stórskyttunni Kyril Lazarov.

Spænski landsliðsmaðurinn Raul Entrerrios var markahæstur í liði Barcelona með sjö mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×