Handbolti

Frábær endurkoma hjá Vigni og félögum

Vignir á ferðinni í landsleik.
Vignir á ferðinni í landsleik. vísir/vilhelm
Vignir Svavarsson og félagar í Midtjylland unnu upp sex marka forskot GOG í danska handboltanum i kvöld og nældu í stig.

Midtjylland komst meira að segja yfir en GOG jafnaði í lokin. Vignir skoraði þrjú mörk fyrir sitt lið sem er í öðru sæti dönsku úrvalsdeildarinnar.

Íslendingaliðið Mors Thy varð aftur á móti að sætta sig við tveggja marka tap, 29-27, í æsispennandi leik gegn Lemvig.

Guðmundur Árni Ólafsson skoraði þrjú mörk fyrir Mors Thy en Róbert Aron Hostert komst ekki á blað enda lítið að spila.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×