Körfubolti

Fyrsta tapið hjá liði Jóns Arnórs

Jón Arnór í landsleik.
Jón Arnór í landsleik. vísir/daníel
Lið Jóns Arnórs Stefánssonar, Unicaja Malaga, mátti sætta sig við tap í Euroleague í kvöld.

Liðið tapaði þá með tíu stiga mun, 95-85, gegn CSKA Moskvu.

Þetta var toppslagur í B-riðli keppninnar en bæði lið höfðu unnið þrjá fyrstu leiki sína í keppninni.

Jón Arnór Stefánsson gat ekki leikið með Unicaja vegna meiðsla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×