Handbolti

Ólafur Andrés meiddist á æfingu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Vilhelm
Ólafur Andrés Guðmundsson verður frá keppni næstu vikurnar eftir að hann meiddist á æfingu á þriðjudag.

Ólafur leikur með Hannover-Burgdorf í þýsku úrvalsdeildinni en félagið greindi frá þessu í gær.

„Þetta er áfall fyrir hann og liðið,“ sagði Christopher Nordmeyer, þjálfari liðsins. „Hann var byrjaður að falla mjög vel að leik liðsins og verðum við að fylla í skarð hans næstu vikurnar.“

Sven-Sören Christophersen, Vasko Sevaljevic og Csaba Szücs munu hjálpast við að leysa Ólaf af hólmi. „Við verðum að komast af með þrjá leikmenn fyrir tvær stöður þar til Ólafur getur spilað á ný,“ bætti Nordmeyer við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×