Handbolti

Guðmundur sá sína menn vinna í Bosníu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Guðmundur gat gengið stoltur frá
Guðmundur gat gengið stoltur frá Vísir/Getty
Guðmundur Þórður Guðmundsson og lærisveinar hans í danska handboltalandsliðinu unnu góðan útisigur á Bosníu í undankeppni EM 2016 í kvöld.

Danir voru yfir í hálfleik 12-11 og héldu uppteknum hætti í þeim síðari og unnu að lokum tveggja marka sigur, 23-25.

Mikkel Hansen og Henrik Møllegaard Jensen voru markahæstir með fimm mörk, en Anders Eggert kom næstur með þrjú mörk.

Muhamed Toromanovic var markahæstur hjá Bosníu með sex mörk.

Danir eru því með fullt hús stiga, en þeir áttu ekki í miklum vandræðum með Litháen í fyrstu umferðinni. Lokatölur þar 31-21.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×