Handbolti

Dagur hafði betur gegn Patreki

Anton Ingi Leifsson skrifar
Dagur gat verið glaður í leikslok í dag.
Dagur gat verið glaður í leikslok í dag. Vísir/Getty
Dagur Sigurðsson hafði betur gegn Patreki Jóhannessyni þegar þeir mættust með lið sín Þýskaland og Austurríki í undankeppni EM 2016 í handbolta í gær. Leikið var í Austurríki.

Lokatölur urðu 28-24 eftir að staðan í hálfleik hafi verið 12-11, Þjóðverjum í vil.

Uwe Gensheimer var frábær í liði Þýskalands, en hann skoraði alls tíu mörk. Patrick Wieneck gerði einnig vel, en hann skoraði sjö mörk.

Robert Weber gerði sex fyrir lærisveina Patreks, en fjórir leikmenn komu næstir; allir með þrjú mörk.

Austurríki hefur tapað fyrstu tveimur leikjunum í riðlinum gegn ógnarsterkum Spánverjum og Þjóðverjum. Þýskaland er með með fullt hús stiga, en þeir unnu Finnland í fyrsta leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×