Bílar

Automobile tilnefnir 10 bíla

Finnur Thorlacius skrifar
Bílarnir 10 sem keppa um titilinn bíll ársins hjá Automobile.
Bílarnir 10 sem keppa um titilinn bíll ársins hjá Automobile.
Mörg bílatímarit tilnefna bíl ársins og bandaríska bílatímaritið Automobile er eitt þeirra. Það hefur nú tilnefnt 10 bíla sem keppa um titilinn bíll ársins árið 2015.

Það eru bílarnir Alfa Romeo 4C, BMW i8, BMW 2-línan, Chevrolet Camaro Z/28, Ford Mustang, Honda Jazz, Lamborghini Huracán, Mercedes Benz C-Class, Subaru WRX og Volkswagen GTI. Einn þeirra hlýtur nafnbótina eftir miklar prófanir á bílunum í umsjá blaðamanna blaðsins vinsæla.

Aðeins einn bílaframleiðandi á tvo bíla á listanum og er það BMW með i8 og nýja BMW 2-line Active Tourer bílinn. 






×