Körfubolti

Hörður Axel í stuði í sigri

Anton Ingi Leifsson skrifar
Hörður Axel í landsleik.
Hörður Axel í landsleik. Vísir/Daníel
Hörður Axel Vilhjálmsson skoraði sextán stig í sigri Mitteldeutscher BC á Eisbären Bremerhaven í þýska körfuboltanum í dag.

Hörður Axel lék í 25 mínútur og skoraði eins og fyrr segir 16 stig. Auk þess tók hann þrjú fráköst og átti eina stoðsendingu.

Hörður Axel og félagar lögðu grunninn að sigrinum í þriðja leikhluta, en þeir unnu hann með 21 stiga mun; 30-9. Lokatölur urðu svo 89-66.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×