Handbolti

Tandri bara heitur í tíu mínútur í tapleik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tandri Már Konráðsson.
Tandri Már Konráðsson. Vísir/Stefán
Tandri Már Konráðsson og félagar hans í Ricoh töpuðu í kvöld með tíu marka mun á útivelli á móti Redbergslid, 23-33, í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Tandri Már skoraði fjögur mörk í leiknum og var næstmarkahæsti leikmaður síns liðs í leiknum. Hann þurfti hinsvegar fimmtán skot til að skora þessi fjögur mörk.

Ekkert gekk hjá Tandra í fyrri hálfleiknum þar sem hann klikkað á fyrstu sex skotum sínum í leiknum auk þess að tapa tveimur boltum á erfiðum upphafsmínútum. Redbergslid  var átta mörkum yfir í hálfleik, 18-10.

Tandri Már var heitur tíu fyrstu mínúturnar í seinni hálfleiknum og skoraði þá öll mörkin sín.

Ricoh HK er nú í tíunda sæti sænsku úrvalsdeildarinnar, þremur stigum og fjórum sætum á eftir liði Redbergslid.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×