Körfubolti

Hörður Axel skoraði 16 stig í naumu tapi

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Sorglegt tap hjá Herði og félögum
Sorglegt tap hjá Herði og félögum vísir/daníel
Hörður Axel Vilhjálmsson átti góðan leik fyrir Mitteldeutscher en það dugði ekki til því liðið tapaði 88-85 fyrir Medi Bayreuth í þýsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Hörður skoraði 17 stig , tók 2 fráköst, gaf 2 stoðsendingar og stal einum bolta en slakur fyrsti leikhluta fór með leikinn fyrir Mitteldeutscher sem var 30-8 undir eftir tíu mínútna leik.

Mitteldeutshcer er í 7. sæti deildarinnar með 7 sigra í ellefu leikjum. Medi Bayreuth er með sex sigra í einum leik meira.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×