Körfubolti

Óvænt tap hjá Jóni og félögum

Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson og félagar misstigu sig í Evrópudeildinni í kvöld.

Þá sótti Unicaja lið Limoges heim en Limoges hafði aðeins unnið einn leik í riðlinum og var á botninum. Unicaja aftur á móti í öðru sæti með fjóra sigurleiki.

Strákarnir í Limoges voru aftur á móti öflugir í kvöld og lönduðu sætum þriggja stiga sigri, 67-64.

Jón Arnór skoraði 5 stig í leiknum.  Nýtti sitt eina tveggja stiga skot en aðeins eitt af fjórum þriggja stiga skotum hans fóru niður.

Jón tók líka tvö fráköst í leiknum og gaf tvær stoðsendingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×