Handbolti

Geir hafði betur gegn Degi

Geir á hliðarlínunni hjá Magdeburg.
Geir á hliðarlínunni hjá Magdeburg. vísir/getty
Lið íslensku þjálfaranna Geirs Sveinssonar og Dags Sigurðssonar mættust í hörkuleik í þýska handboltanum í kvöld.

Jafnt var á með liðunum í hálfleik, 15-15, en lið Geirs, Magdeburg vann að lokum sigur, 30-26, á Füchse Berlin.

Robert Weber flottur í liði Magdeburg en hann skoraði sjö mörk í kvöld. Konstantin Igropulo allt í öllu hjá Berlin með níu mörk.

Magdeburg komst upp í fjórða sæti deildarinnar með sigrinum en Berlin er sem fyrr í sjötta sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×