Handbolti

Arnór með stórleik gegn Ásgeiri Erni

Arnór í leik með St. Raphael.
Arnór í leik með St. Raphael.
Lið Arnórs Atlasonar, St. Raphael, er komið í annað sæti frönsku úrvalsdeildarinnar, í það minnsta tímabundið, eftir fínan sigur í kvöld.

Þá lagði St. Raphael lið Ásgeirs Arnar Hallgrímssonar, Nimes, 37-34. St. Raphael alltaf skrefi á undan í leiknum.

Arnór átti sannkallaðan stórleik í kvöld. Hann skoraði sjö mörk úr tíu skotum og virðist vera í mjög góðu formi.

Ásgeir Örn var ekki jafnheitur. Hann skoraði aðeins eitt mark úr fjórum skotum.

St. Raphael er með 17 stig í öðru sæti eða stigi meira en PSG sem er að spila núna. Nimes er í næstneðsta sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×