Körfubolti

Risasigur hjá Sigurður Gunnari og félögum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sigurður Gunnar Þorsteinsson.
Sigurður Gunnar Þorsteinsson. Vísir/Valli
Ísafjarðartröllið Sigurður Gunnar Þorsteinsson og félagar hans í Solna Vikings unnu 55 stiga stórsigur á botnliði Örebro, 105-50, í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Sigurður Gunnar var með 9 stig og 3 stoðsendingar á 19 mínútum í leiknum en hann hitti úr 4 af 5 skotum sínum. Sigurður Gunnar var einnig með 3 stolna bolta og 2 varin skot.

Solna Vikings vann fyrsta leikhlutann 27-7 og var 28 stigum yfir í hálfleik, 51-23. Sigurður Gunnar skoraði ekki í fyrri hálfleiknum en var með sjö stig í þriðja leikhlutanum sem Solna vann 26-17.

Solna Vikings var búið að tapa tveimur leikjum í röð fyrir leikinn en Örebro-liðið varð þarna að sætta sig við sitt þrettánda deildartap í röð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×