Dönsku stelpurnar upp í annað sætið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. desember 2014 21:09 Kristina Kristiansen skoraði ekki bara fjögur mörk því hún varði líka skot frá Ungverjum þegar hún spilaði sem aukamaður og þurfti að fara í markið. Vísir/AFP
Danmörk vann þriggja marka sigur á heimakonum í Ungverjalandi, 23-20, þegar liðin mættust í kvöld i milliriðli eitt á Evrópumótinu í handbolta kvenna en mótið fer fram í Ungverjalandi og Króatíu. Noregur er þegar búið að tryggja sér sigur í milliriðlinum en norska liðið (8 stig) hefur nú þriggja stiga forskot á danska liðið (5 mörk) í öðru sætinu þegar aðeins ein umferð er eftir. Spánn og Ungverjaland eru með fjögur stig en Danmörk mætir Spáni í lokaumferðinni á meðan Ungverjarnir spila við Noreg. Noregur getur leyft sér að hvíla lykilmenn í þeim leik. Dönsku stelpurnar töpuðu á móti Noregi en hafa unnið alla aðra leiki sína á mótinu. Liðið vann brons á HM í fyrra og tryggir sér sæti í undanúrslitunum með því að ná í stig á móti Spáni á miðvikudaginn. Danska liðið komst í 11-6 á móti Ungverjum í fyrri hálfleiknum í kvöld en var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 11-9. Ungverska liðið skoraði fimm mörk í röð í kringum hálfleikinn og tókst að jafna metin í 11-11. Danska liðið svaraði þá með 6-2 spretti og náði síðan mest sjö marka forskoti, 22-15, þegar tólf mínútur voru eftir af leiknum. Ungverska liðið gafst ekki upp og skoraði fimm af síðustu sex mörkum leiksins en sigur dönsku stelpnanna var aldrei í alvöru hættu. Line Anna Ryborg Jörgensen var markahæst í danska liðinu með sex mörk úr átta skotum en Kristina Kristiansen skoraði fjögur mörk auk þess að gefa fimm stoðsendingar.
Handbolti Mest lesið Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Refsing fyrir að blóta gæti flýtt fyrir því að Verstappen hætti Formúla 1 Liðsfélagi Arnórs með bitför eftir andstæðing Fótbolti Sögulegur dagur er Thelma sópaði til sín gullverðlaunum Sport Arteta vildi ekki tjá sig um rauða spjaldið Fótbolti Uppgjörið og viðtöl: Fram - Fylkir 2-0 | Langþráður sigur Fram setur níu tær í efstu deild að ári Íslenski boltinn „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Atlético Madrid gerði enn eitt jafnteflið Fótbolti Fleiri fréttir Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Bjarki Már og Orri Freyr með stórsigra í Meistaradeildinni Uppgjörið: FH - ÍBV 33-30 | Góður kafli í fyrri hálfleik skilaði sigri FH-inga Framarar flæktir í óskýrum reglum HSÍ: „Þetta er alveg galið dæmi“ Haukur komið að nítján mörkum í fyrstu tveimur leikjunum í Meistaradeildinni Selfoss átti lítið í Íslandsmeistara Vals „Stefnum á að vera í þessum efri hluta“ Uppgjörið: ÍR - ÍBV 22-22 | Heimakonur komnar á blað Haukur magnaður í sigri á Viktor Gísla og félögum Alfa Brá og Katrín Anna í landsliðið Tímabilið byrjar vel hjá Bjarka sem varð markahæstur í stórsigri Gummersbach gaf mikið eftir í seinni hálfleik Sjá meira
Uppgjörið og viðtöl: Fram - Fylkir 2-0 | Langþráður sigur Fram setur níu tær í efstu deild að ári Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: Fram - Fylkir 2-0 | Langþráður sigur Fram setur níu tær í efstu deild að ári Íslenski boltinn