Handbolti

Guðmundur vildi verja heiður sinn og Ljónanna

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Guðmundur fagnar með sínum mönnum.
Guðmundur fagnar með sínum mönnum. Vísir/Getty
Guðmundur Guðmundsson segir að það hafi verið áfall fyrir sig að hafa verið dreginn inn í þá ótrúlegu atburðarás sem átti sér stað eftir leik Kielce og Rhein-Neckar Löwen í Meistaradeild Evrópu um þarsíðustu helgi.

Eins og frægt er greindi Guðmundur frá því að TalantDujshebaev, þjálfari Kielce, hefði slegið sig fyrir neðan beltisstað eftir fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum keppninnar sem fór fram í Póllandi. Dujshebaev gekk svo hart fram á blaðamannafundinum eftir leik og sakaði Guðmund um afar ósæmilega hegðun í sinn garð.

„Svo tók við mikið fjölmiðlafár, eins og kannski eðlilegt er. Sem betur fer fjölluðu fjölmiðlar um þetta mál, segi ég í dag,“ sagði Guðmundur í samtali við Fréttablaðið í gær. Hann var þá í afslöppun eftir átök mánudagskvöldsins en þá komst Löwen áfram í Meistaradeildinni eftir fjögurra marka sigur á Kielce á heimavelli í síðari viðureign liðanna.

Talant Dujshebaev varð sér til skammar í fyrri leiknum.Vísir/Getty
Átti ekki að vera hefndarstund

Guðmundur segist hafa ákveðið fljótlega að ýta málinu til hliðar og hafa hægt um sig í fjölmiðlum. Hann setti þess í stað mikinn kraft í undirbúninginn fyrir leikinn.

„Ég átti mjög mikilvægan fund með leikmönnum á fimmtudag þar sem ég lagði upp leikinn. Við vildum forðast að nálgast leikinn á þann hátt að við værum að hefna einhvers. Þetta snerist um meira en það því hjartað átti að ráða för. Við vildum verja heiður minn, liðsins og handboltans. Það er ekki hægt að svara betur fyrir sig en á vellinum og mér fannst réttlætið hafa betur í þessum leik.“

Guðmundur hefur ætíð lagt ríka áherslu á að undirbúa lið sín með svokölluðum „vídeófundum“ og það var greinilegt að landsliðsþjálfarinn fyrrverandi lagði ríka áherslu á slíkan undirbúning nú.

„Ég hef haldið þá marga en þessir fundir voru gríðarlega langir,“ sagði hann og hrósaði sínum leikmönnum. „Þeir fóru í gegnum allt þetta með mér og við náðum fram ótrúlegri samheldni sem var auðmerkjanleg strax frá fyrstu mínútu leiksins. Það var í raun ólýsanlegt að sjá hversu sterk hún var.“

Niclas Landin var frábær í seinni leiknum gegn Kiel.Vísir/Getty
Engin samskipti við Dujshebaev

Guðmundur tók ekki í hönd Dujshebaev í fyrrakvöld og sagði að samskipti þeirra á milli hafi engin verið. „Þeim samskiptum er lokið,“ segir Guðmundur.

„Ég sá hann ekki – hvorki fyrir leik né heldur meðan á honum stóð. Þannig hafði ég einfaldlega undirbúið mig fyrir leikinn,“ segir hann þó svo að Spánverjinn hafi staðið aðeins nokkrum metrum frá honum á hliðarlínunni, líkt og venjan er.

Þeir sátu svo saman á blaðamannafundi eftir leikinn líkt og þeim er skylt að gera en þeir ræddust heldur ekki við þar.

„Hann kom með sín ummæli um leikinn og ég mín. Það var rafmagnað andrúmsloft í salnum og upplifunin skrítin,“ sagði hann en Guðmundur staðfestir að hvorugur hafi verið spurður út í deilur þeirra á fundinum. Hann játar að það hafi komið sér á óvart.

Fengum erfiðasta verkefnið

Í gær var svo dregið í fjórðungsúrslit Meistaradeildarinnar og fékk Rhein-Neckar Löwen það erfiða verkefni að mæta stórliði Barcelona.

„Þetta var kannski erfiðasti andstæðingurinn sem við gátum fengið enda taldir einna sigurstranglegastir í keppninni,“ segir Guðmundur. „Barcelona er með þrusulið en við erum líka góðir. Það er engin ástæða til að fela okkur fyrir þeim.“

Guðmundur á þó góðar minningar frá Palau Blaugrana, heimavelli Börsunga. Hann er einn fárra þjálfara sem hafa farið þangað með lið sitt og unnið.

„Það var í fyrsta leiknum mínum með Löwen og mun ég seint gleyma honum. En það er bara góð minning í dag og ekkert meira.“


Tengdar fréttir

Rannsókn hafin á Dujshebaev

Handknattleikssamband Evrópu, EHF, staðfestir á heimasíðu sinni í dag að dómstóll sambandsins muni taka mál Talant Dujshebaev fyrir.

Forseti Kielce: Við munum verja okkur

Ekkert virðist marka meinta afsökunarbeiðni sem forráðamönnum Rhein-Neckar Löwen á að hafa borist eftir leik liðsins gegn Kielce um helgina.

Dujshebaev fékk sekt en slapp við leikbann

Handknattleiksþjálfarinn Talant Dujshebaev var ekki dæmdur í leikbann fyrir að kýla Guðmund Þórð Guðmundsson. Aganefnd EHF úrskurðaði í málinu í dag.

Guðmundur náði fram hefndum gegn Dujshebaev

Lið Guðmundar Guðmundssonar tryggði sér sæti í átta liða úrslitum Meistararadeildarinnar er liðið vann fjögurra marka sigur, 27-23, á Kielce í seinni leik liðanna. Kielce vann fyrri leikinn, 32-28, og Löwen fer því áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×