Handbolti

Sjáðu frábært mark Stefáns Rafns gegn Veszprém

Stefán Rafn fagnar með Löwen.
Stefán Rafn fagnar með Löwen. vísir/getty
Landsliðsmaðurinn Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði stórkostlegt mark fyrir Rhein-Neckar Löwen í desember sem hefur verið tilefnt sem eitt af mörkum mánaðarins í Þýskalandi.

Markið skoraði Stefán Rafn í Meistaradeildinni gegn ungverska liðinu Veszprém sem Aron Pálmarsson mun spila með á næstu leiktíð.

Undirhandarskot af bestu gerð hjá okkar manni sem sýnir vel skottækni leikmannsins. Hann er ekki bara frábær í horninu.

Markið má sjá hér að neðan og hér má kjósa um mark mánaðarins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×