Körfubolti

Kristófer í tapliði

Anton Ingi Leifsson skrifar
Kristófer treður með KR í leik gegn Grindavík.
Kristófer treður með KR í leik gegn Grindavík. Vísir/
Kristófer Acox skoraði tvö stig fyrir Furman í háskólaboltanum í nótt þegar hann og félagar hans töpuðu gegn Chattanooga á útivelli, 72-60.

Staðan var 36-32 fyrir Chattanooga í hálfleik og í síðari hálfleik spýttu þeir í löfana og gáfu Kristóferi og félögum engan frið.

Kristófer skoraði eins og fyrr segir tvö stig, en hann hitti úr eina skoti sínu í leiknum úr leiknum. Hann klikkaði svo tveimur vítaköstum. Einnig tók Kristófer eitt frákast og stal einum bolta.

Gunnar Ólafsson var ekki í leikmannahópnum hjá St. Francis sem vann Sacred Heart í háskólaboltanum í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×