Handbolti

Sunna öflug í sigri

Anton Ingi Leifsson skrifar
Sunna þrumar boltanum á sínum tíma með Fram.
Sunna þrumar boltanum á sínum tíma með Fram. Vísir/Mynd
Sunna Jónsdóttir var öflug hjá BK Heid í sigri á Team Eslövs IK í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta.

BK Heid tók forystuna á áttundu mínútu og héldu Sunna og félagar þeirri forystu út allan leikinn. Staðan var 12-8, BK Heid í vil í hálfleik.

Heid bætti bara í í síðari hálfleik og unnu að lokum átta marka sigur, 20-28.

Sunna gerði vel og skoraði fimm mörk úr sex skotum og var næst markahæst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×