Körfubolti

Ívar áfram með kvennalandsliðið

Ívar ásamt Helenu Sverrisdóttur landsliðskonu.
Ívar ásamt Helenu Sverrisdóttur landsliðskonu. mynd/kkí
Körfuknattleikssamband Íslands, KKÍ, tilkynnti í dag að búið væri að framlengja við landsliðsþjálfara kvenna, Ívar Ásgrímsson.

Samningurinn er til tveggja ára og sem fyrr verður Margrét Sturlaugsdóttir honum til aðstoðar.

Ívar og Margrét stýrðu liðinu á síðasta ári á Evrópukeppni Smáþjóða á vegum FIBA Europe og í tveim æfingaleikjum gegn danska landsliðinu í undirbúningnum fyrir það mót.

Annar aðstoðarþjálfari verður einnig ráðinn á næstu dögum og mun sá þjálfari einnig þjálfa U20 lið kvenna.

 

Það er margt framundan á þessu ári hjá kvennaliðinu en kvennaliðið kemur saman í maí til undirbúnings fyrir Smáþjóðaleikarnna sem fara fram á Íslandi dagana 1.-6. júní í Laugardalshöllinni.

Í kjölfarið tekur landsliðið þátt í æfingamóti í Danmörku í júlí sem er undirbúningur fyrir undankeppni Evrópukeppninnar 2017 (EuroBasket women 2017) sem hefst svo í haust.

 

Þá verður í fyrsta sinn keppt í undankeppni EM á meðan keppnistímabilið er í gangi í Evrópu en FIBA Europe hefur sett upp nokkra ákveðna leikdaga eða „glugga“.

Í vor veður dregið í riðla fyrir þá keppni og þá kemur í ljós hverjir andstæðingar okkar verða í undankeppninni.

 

Fyrsti leikglugginn verður í nóvember og verða þá leiknir tveir leikir, einn heima og einn úti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×