Handbolti

Guðjón Valur með tvö í sigri Barcelona

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Guðjón Valur í leik með Barcelona
Guðjón Valur í leik með Barcelona vísir/getty
Barcelona lagði Aragón 35-27 í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Guðjón Valur Sigurðsson var ekki í byrjunarliði Barcelona en hann skoraði 2 mörk í leiknum.

Barcelona var 17-15 yfir í hálfleik eftir jafnan fyrri hálfleik. Leiðir skildu snemma í seinni hálfleik og var aldrei spurning hvoru megin sigurinn myndi lenda.

Barcelona er með fullt hús stiga eftir 16 umferðir en Aragón er í næst neðsta sæti með 6 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×