Handbolti

Stjörnuleikurinn í beinni á Stöð 2 Sport

Dagur verður örugglega í stuði í kvöld.
Dagur verður örugglega í stuði í kvöld. vísir/eva
Hinn árlegi stjörnuleikur í þýska handboltanum fer fram í kvöld og er í beinni á Stöð 2 Sport. Útsending hefst klukkan 19.10.

Þá spilar þýska landsliðið gegn úrvali erlendra leikmanna en kosið var í liðið. Alexander Petersson verður í alþjóðlega liðinu sem er stýrt af Ljubomir Vranjes. Dagur Sigurðsson er svo að sjálfsögðu að stýra þýska landsliðinu.

Þarna verða margar af stærstu stjörnum handboltaheimsins í dag að skemmta sjálfum sér og öðrum.

Guðjón Guðmundsson mun svo sjá um að lýsa herlegheitunum á sinn einstaka hátt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×